Þessi stórglæsilega íbúð er í Lundi í Kópavogi sem er eftirsóttur staður í fallegu umhverfi. Íbúðin er í hjarta Fossvogsdalsins þar sem stutt er í falleg græn svæði ásamt margvíslegri þjónustu og afþreyingu. Smáralindin, Kringlan og Fossvogsdalurinn svo og Öskjuhlíðin svo eitthvað sé nefnt.
Á efri hæð íbúðarinnar er sér inngangur beint inn af bílaplani og komið er inn í forstofu með fallegum flísum á gólfi og góðum fataskápum
Tvö rúmgóð svefnherbergi eru á efri hæðinni, hjónaherbergi með fataherbergi og forstofuherbergi með góðum fataskápum.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í stóru og björtu alrými, sérlega fallegur horngluggi í stofum. Eldhús með vönduðum tækjum og innréttingum, falleg eyja í eldhúsi, flísar á milli efri og neðri skápa. Inn af eldhúsi er gott búr með tengi fyrir þvottavél. Rúmgóðar svalir út frá stofum. Baðherbergi er rúmgott, flísalagt hólf í gólf, vönduð tæki og innréttingar, baðkar og flísalagður sturtuklefi.
Í alrýminu er svo hringstigi niður á neðri hæð og getur rýmið nýst sem sjónvarpsaðstaða en einnig eru á hæðinni tvö rúmgóð svefnherbergi. Gott þvottahús og geymsla, flísar á gólfum. Baðherbergi, flísalagt hólf í gólf og sturtuklefi. Á neðri hæð er einnig inngangur og beint aðgengi inní bílageymsluna.
Hér getur þú séð meira um þessa fasteign.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.