Er eðlilegt að njóta ásta við brauðdeig? Þykir þér sexí að sjá mannleg húsgögn? Kveikir tilhugsunin um yfirvofandi heimsendi, hreinsunareldinn, hamfarir í helvíti og hugsanlega aflausn synda í þér?
Ef svo er, þá ert þú væntanlega haldin/n afar sjaldgæfu blæti. En hvað er “blæti” og hvernig skilgreina sérfræðingar fyrirbærið?
“Blætisdýrkun: Dýrkun hlutar vegna yfirnáttúrulegs afls sem honum er eignað. Kynferðisleg blæti er afbrigðileg kynhneigð bundin við hlut, t.d. flík einstaklings af gagnstæðu kyni.”
– Íslenska alfræðiorðabókin
Það er margt skrýtið í kýrhausnum:
[youtube width=”600″ height=”320″ video_id=”f45H192_rbY#t=11″]
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.