Þessar súkkulaðikúlur eru algjört sælgæti og það kemur manni á óvart að hægt sé að nota avókadó í svona einstaklega gómsætt sælgæti.
Avókadó er hægt að nota í fleira en guacamóle og tacos. Hér kemur uppskrift af gómsætu sælgæti. Og leyndardómurinn leynist í þessum einstaklega holla ávexti.
Súkkulaðikúlur með lárperu
U.þ.b.20 kúlur
Efni:
- 1 þroskað avókadó
- 150 gr. dökkt súkklaði
- 2 msk. púðursykur
- 1/4 tsk. vanilludropar
- salt
- 2-1/2 msk. kakó
Aðferð:
- Takið „kjötið“ úr skelinni á lárperunni (avókadó) og maukið. (Hægt að gera það í blandara).
- Bræðið súkkulaðið við hægan hita. (Hrærið varlega meðan það er að bráðna)
- Látið avokadómaukið út í ásamt púðursykrinum, vanillu, salti og kakói. Hrærið vel saman.
- Látið kólna í ísskápnum (í 30 mín.)
- Þegar hræran er orðin stinn, formið þá kúlur með tveim teskeiðum. Lagið til í höndunum og veltið hverri kúlu upp úr kakóinu.
- Geymið í ísskápnum- ef kúlurnar eru ekki borðaðar strax!