Hugtakið fjölskylda er mikilvægt fyrir vörumerki fatahönnuðanna Dolce & Gabbana. Nýtt verkefni þeirra miðar að því að safna saman fallegum fjölskyldumyndum svo að úr verði allsherjar myndaalbúm á netinu tileinkað fjölskyldum um allan heim.
Á heimasíðu þeirra hér getur þú hlaðið inn þinni fjölskyldumynd beint af tölvunni eða af facebooksíðunni þinni. Ef að þú vilt þá getur þú sett logoið þeirra á myndina líka.
Ljósmyndin á að sýna fjölskyldu í öllum litbrigðum og má vera af fyrri kynslóð eða þeirri sem er á lífi í dag. Fólkið þarf ekki að vera klætt í fatnað frá D & G.
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.