Tara Reid á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir en leikkonan birti ljósmynd af sér á Instagram á dögunum sem sýnir hana íklæðast aðeins nærbuxum.
Hafa margir í kjölfarið velt því fyrir sér hvort sjónvarpsstjarnan sé heil heilsu en líkamsþyngd hennar virðist vera í algjöru lágmarki.
Tara Reid, sem nú er orðin 38 ára, sló í gegn í sjónvarpsþáttunum Saved By The Bell og Scrubs. Þá hefur hún einnig starfað sem fyrirsæta um skeið.
Á meðfylgjandi ljósmyndum má sjá Töru fyrir utan skemmtistað í Los Angeles á dögunum þar sem hún hélt varla jafnvægi og hneig niður í örtröðinni fyrir framan bílinn.
Hérna er sjálfsmyndin sem Tara tók heima hjá sér á dögunum
Tara Reid heima hjá sér áður en hún fór út að skemmta sér
Heimild: The Fishwrapper