Söngkonan Taylor Swift fagnaði 25 ára afmælinu sínu á föstudaginn með bókstaflega öllum af heitustu tónlistarmönnunum um þessar mundir. Beyoncé og Jay Z mættu í þetta kósý afmælisteiti sem Taylor hélt í íbúð sinni í New York en Justin Timberlake, Sam Smith, Karlie Kloss og söngkonurnar úr hljómsveitinni Haim létu einnig sjá sig.
Taylor Swift var ekkert að flækja málin þegar kom að því að bjóða upp á veitingar fyrir afmælisgestina og keypti japanskan mat, pizzur og bjór. Fyrr um kvöldið söng Taylor á jólatónleikum í Madison Square Garden en um leið og hún hafði lokið söng sínum hélt hún af stað heim til að fagna.
Selena Gomez, Kelly Osbourne, Nick Jonas og Chrissy Teigen létu einnig sjá sig en Matt Healy sem er talinn vera nýji kærasti Taylor var hvergi sjáanlegur.
.
Tengdar greinar:
Svona urðu Taylor Swift og Lorde bestu vinkonur
Taylor Swift sendir fingurinn í smellinum Blank Space
Taylor Swift kemur krabbameinssjúkum manni á óvart
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.