Taylor Swift (26) skellti sér til Bretlands til að heimsækja nýju tengdamóður sína með nýja kærastanum Tom Hiddleston (35). Tom hitti foreldra Taylor í síðustu viku, en nú stigu þau um borð í einkaþotu söngkonunnar svo hann gæti sýnt henni sveitina sem hann ólst upp í.
Sjá einnig: Taylor Swift strax komin með annan
Svo virðist sem móðir Tom, Diana væri mjög ánægð með Taylor og sást til þeirra halda utan um hvort annað á gangi nærri heimili hennar í Ipswich í Suffolk. Parið staldraði þó aðeins við í 24 klukkustundir, en það gaf Tom aðeins tækifæri á að sýna Taylor aðeins um.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.