Oft hefur maður heyrt rætt um það að það séu sterk tengsl milli vefjagigtar og áfalla.
Þessi litli pistill um rannsókn á þessu er tekin af vef vefjagigt.is/ en þar er að finna mikin fróðleik sem helstu sérfræðingar um vefjagigt hafa tekið saman.
Andleg áföll:
Hugsanlegt er að vefjagigt sé orsökuð af andlegum áverkum því rannsóknarniðurstöður benda til að sterk tengsl séu á milli langvarandi andlegs álags og vefjagigtar. Nokkuð stór hluti vefjagigtarsjúklinga gefa sögu um andlega áverka. Andlegir áverkar geta verið margskonar má þar nefna heimilisofbeldi, nauðgun, sifjaspell og einelti. Andlegt álag af hvaða toga sem er veldur mikilli spennu og streitu í líkamanum sem stuðlar að lífefnafræðilegum breytingum í líkamanum þannig að með tímanum fara að koma fram ýmis líkamleg einkenni.
Rannsókn sem gerð var á algengi vefjagigtar meðal 29 einstaklinga sem höfðu verið greindir með áfalla-streituröskun (e. post traumatic stress disorder) leiddi í ljós að 21% þeirra uppfylltu greiningu á vefjagigt (28). Til samanburðar voru skoðaðir 37 einstaklingar sem ekki höfðu orðið fyrir áfallastreituröskun og reyndist enginn þeirra vera með vefjagigt . Einnig hefur verið skoðað hversu algengt sé að fólk með vefjagigt hafi fengið áfallastreituröskun. Rannsóknarniðurstöður sem Cohen og félagar birtu 2002 benda til að tengsl séu á milli áfallstreitu röskunar og vefjagigtar(29). Af 77 einstaklingum með vefjagigt sem þeir rannsökuðu reyndust 57% vera með einkenni áfallastreituröskunar.
Kristín fæddist á nunnuspítala og var skírð á flugvelli í henni Ameríku.
Hún er gift og á þrjú börn og eitt barnabarn. Hún hefur að mestum hlut unnið við að efla fólk og hefur menntað sig á því sviði. Ásamt því að skrifa á hun.is vinnur hún sjálfstætt sem meðferðaraðili.
Elskar að lesa, skrifa og mála en útivist og andleg málefni heilla hana.
Hún skrifar út frá eigin reynslu, faglegu nótunum og kaldhæðnislega um upplifun sína af breytingarskeiði miðaldra kvenna. Með hækkandi aldri hefur hún lært að létta sér lífið sem húsmóðir og gera mat á einfaldan hátt en alveg afbragðsgóðan svo frá henni má sjá uppskriftir að ýmsu góðgæti.
Hennar mottó er jákvæðni út í kosmósið því hún hefur lært af lífinu að jákvæðni kemur manni ansi langt!