Það er hægt að verða sjúklega sjálfhverfur en það heitir á fræðimáli að vera með sjálfhverfa persónuleikaröskun (Narcissistic personality disorder).
Einkenni sjálfhverfrar persónuleikaröskunnar eru meðal annars:
- Hefur óbilandi sjálfstraust og ýkir afrek sín og hæfileika. Vill fá mikið lof fyrir lítil afrek.
- Er upptekin/n við draumóra um ótakmarkaða velgengni, völd, ljóma, fegurð, eða ást.
- Telur að hann/hún sé sérstök manneskja og finnst hann/hún eigi að gegna stóru hlutverki í þjóðfélaginu.
- Krefst óhóflegrar aðdáunar
- Hefur ekki samúð með öðrum og finnur enga samkennd.
Hér fyrir neðan eru mjög áhugaverð heimildarmynd um einstaklinga sem eru með sjálfhverfa persónuleikaröskun.