Aðstoðarleikstjóri Friends þáttaraðanna, Marta Kauffman(59) hefur alfarið neitað fyrir að það muni verða að endurfundum, hvað þá heldur að kvikmynd með leikurum þáttanna.
Sjá einnig: Friends-aðdáandi fékk bónorð drauma sinna
Aðdáendur Friends um allan heim voru himinlifandi yfir fregnunum um mögulegt samstarf leikaranna aftur, en draumur þeirra varð að engu þegar tveir af aðalleikurum þáttanna, þeir Matthew Perry og David Schwimmer lýstu því yfir að ekkert myndi verða úr slíkum fyrirætlunum. Lisa Kudrow, Jennifer Aniston, Matt LeBlanc og Courtney Cox hafa enn ekki tjáð sig um málið.
Sjá einnig: Friends: Kvikmyndin sem við viljum öll sjá verða að veruleika
Hins vegar eru þau að hugsa um að hittast til að heiðra NBC leikstjórann Jimmy Burrows, sem sá um þættina, rétt eins og þau sem komu að Cheers, Frasier, Will og Grace og fleiri þættum sem hann leikstýrði. Jim hefur komið að gríðarlega mörgum þáttum á 40 ára ferli sínum og segja sumir að hann sé einn af þeim sem gerðu Ameríska grínþætta vinsæla um allan heim.
Sjá einnig: Matthew Perry sagður óþekkjanlegur
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.