Par eitt, Lauren og Jack, ferðast um heiminn, tekur af sér myndir og birtir fyrir fjölmarga fylgjendur sína á Instagram varð heldur betur hissa þegar það rakst á myndir frá öðru pari á sama miðli. Það kom í ljós að annað par hafði elt þau á þá staði sem þau fóru á og endurgert myndir þeirra úr ferðalögunum. Þau fóru ekki bara á sama stað, heldur stilltu sér nákvæmlega eins upp og klæddust alveg eins fötum fyrir myndirnar.
Sjá einnig: Þessi hvutti er að bræða Instagram
Þau síðan birtu myndirnar á sínum eigin Instagram reikningi eins og ekkert væri eðlilegra.
Heimildir: Bored Panda
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.