Þessi stúlka er einungis 23 ára gömul og starfar sem fyrirsæta og förðunarfræðingur. Hún heitir Townsend og er ótrúlega flott, algjör kroppur og hún birti þessa mynd af sér á dögunum, þar sem hún liggur í sólbaði.
Það sem gerir Townsend öðruvísi en aðrar stúlkur sem birta myndir af sér á sundfötunum er að hún er með tvo stómapoka.
Townsend var greind með Crohn sjúkdóminn þegar hún var 11 ára gömul og hefur þurft að fara í 6 aðgerðir vegna hans og á endanum þurfti hún að fá tvo stómapoka.
„Loksins, eftir þrjú og hálft ár, hef ég ákveðið að þessir stómapokar eiga ekki að stjórna lífi mínu,“ segir Townsend á Facebook síðu sinni. „Svo þegar ég fór til Mexíkó með eiginmanni mínu í desember, þá leyfði ég pokunum að sjást í fyrsta skipti án þess að skammast mín. Ég vonast enn eftir því að lækning finnist.“
Myndin hefur fengið mikla athygli og mörg þúsund deilingar og það er óhætt að segja að Townsend er hugrökk ung kona.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.