Við erum þekkt fyrir að kunna að laga allt og redda hverju sem er, við Íslendingar. Margir kalla þetta að „skítmixa“ en það á líka við tímabundnar lausnir á vandamálum. Íslenskir karlmenn eru líka oft kallaðir „alltmúlígtmenn“ og það á við um marga karlmenn í minni fjölskyldu.
Þetta er eitthvað sem við myndum kannski seint gera en getur varla kallast annað en „skítmix“.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.