Það eru ekki margir dagar frá því að Kylie Jenner (18) og Tyga (26) hættu saman, en Kylie lætur sér ekki leiðast og er kominn með nýjan upp á arminn.
Sjá einnig: Kylie fer á djammið eftir sambandsslitin
Sá nýji er hin rísandi stjarna, Kanadíski rapparinn PartyNextDoor eða réttu nafni Jahron Anthony Brathwait (22). Þau hafa verið vinir um þónokkurt skeið en hafa orðið mun nánari á síðustu dögum eftir sambandsslit Kylie.
Samfélagsmiðladrottningin og rapparinn birtu mynd af sér saman á Instagram, þar sem þau voru að bera saman demantslögðu Rolex úrin sín.
Margar ástæður eru fyrir því að Kylie hætti með Tyga og sumir halda að höfuðpaurinn Kris Jenner hafi ýtt á eftir sambandsslitunum fyrir fjölskylduna. Ástæðan var ekki bara vegna þess að bróðir Kylie, Rob, á von á barni með barnsmóður Tyga, heldur var Kylie hreinlega orðin hrædd um að fá kynsjúkdóm vegna lauslætis Tyga.
Sjá einnig:Kylie Jenner: Hundleiðinleg við unga aðdáendur
Sjá einnig: Tyga hélt framhjá Kylie Jenner með fyrirsætu
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.