Kevin Hart á langt bataferli fyrir höndum sér núna en læknar segja að hann hafi brotið hrygg sinn á þremur stöðum í bílslysi um seinustu helgi. Heimildarmenn TMZ segja að Kevin hafi farið í aðgerð á sunnudagskvöld til að reyna að laga brotin. Hann brotnaði á tveimur stöðum á brjóstholshrygg og á einum stað í lendarhrygg.
Þó aðgerðin hafi gengið vel er Kevin enn að ganga í gegnum vítiskvalir og er hann á mjög sterkum verkjalyfjum til að ráða við sársaukann.
Kevin mun að öllum líkindum ná sér að fullu en flestir sem brotna á lendarhrygg eiga erfitt með gang á eftir og sumir lamast jafnvel. Hann mun þurfa að ganga í gegnum mikla endurhæfingu en samkvæmt TMZ eru góðar batahorfur hjá honum.
Hér er mynd af Plymouth 1970 bílnum sem Kevin og vinir hans voru í þegar slysið átti sér stað.
https://youtu.be/UZl9IrcueUY