
Hún Ragnheiður hjá Matarlyst kann sko heldur betur að búa til góðgæti. Þetta er náttúrulega aðeins of girnilegt ef þið spyrjið mig.
Hráefni
150 g smjör
2 pokar þristur (500 g)
1 pakki appalo fylltar lakkrísreimar
200 g kornflex mulið aðeins
150 g rjómasúkkulaði
Aðferð
Bræðið saman við vægan hita smjör og þrist, hrærið vel saman þar til samlagast.
Passið að láta súkkulaðið alls ekki sjóða.
Klippið lakkrísreimar niður, bætið út í pottinn. Bætið kellogs corn flakes út í veltið vel saman með sleif. Setjið í form bökunarpappír sem er ca 20×20 þjappið vel niður í formið.
Setjið inn í ísskáp eða í kalt rími um stund.
Bræðið súkkulaði á vægum hita yfir vatnsbaði, hellið yfir og smyrjið út setjið inn í ísskáp látið storkna og skerið niður í hæfilega stóra bita.
Njótið vel, geymið bitana í lokuðu íláti inn í ísskáp, einnig er í lagi að frysta molana.
Fyrir veislur er tilvalið að útbúa tvöfalda uppskrift og skera í litla bita

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.