Leo verður samt ekki heima. Svo við höldum því til haga. Annars væri ég búin að leysa út séreignarsparnaðinn minn og flogin af landi brott. DiCaprio leigir út eitt af heimilum sínum, eitt af þeim – hann á jú einhvern slatta, til þeirra sem eru tilbúnir að borga rúmlega 600 þúsund fyrir eina nótt af algjörum lúxus. Að sjálfsögðu er hægt að dvelja lengur en eina nótt, ef maður á rosalega mikið af þúsundköllum. Eða bara milljónum.
Hver ætlar með mér?
Tengdar greinar:
Eru Rihanna og Leonardo DiCaprio ástfangin á laun?
Hann eldist vel – Leonardo DiCaprio í áfengisauglýsingu – Myndband
Titanic: Mistök í kvikmyndinni sem þú tókst örugglega ekki eftir
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.