Nei, þessi kjóll er ekkert grín. Ekki ætlaður fyrir öskudag eða hrekkjavöku. Bara sveittar sumarnætur. Eða eitthvað álíka. Dýrðin er í sölu hjá versluninni NastyGal, sem við margar hverjar þekkjum.
Hvað kosta svo herlegheitin? Tæplega 81 þúsund íslenskar krónur. Jájá, bara rúmlega áttatíu fjólubláa. Fyrir fáeina dúska og efni sem tæpast er til staðar. Ég að vísu veit ekki hvort brókin fylgir.
Ef þið sjáið einhverja pæju spígspora niður Laugaveginn í þessum í sumar – þá vitið þið hver það er.
Tengdar greinar:
Þú trúir ekki úr hverju þessi brúðarkjóll er! – Myndir
ÓTRÚLEGT! Úr hvaða efni er þessi kjóll eiginlega? – Myndir
Kim Kardashian: sýndi geirvörtuna í bleikum netakjól
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.