Suðurskautið virðist paradís þeirra vísindamanna sem rannsaka afbrigðilega kynhegðun dýra, en mörgæsir eru þannig þekktar fyrir að eiga mök við látin dýr (negrófílía), valdbeitingu í kynlífi (nauðganir) og kynferðislega misnotkun á kvendýrum.
Þó er lítt þekktari staðreynd að selir virðast leggja í vana sinn að misnota mörgæsir á grimmilegan máta og þvinga selirnir mörgæsirnar þannig oftlega til kynferðislegs samræðis, en þess má geta að gríðarlegur stærðarmunur er á tegundunum tveimur, utan þess að selir og kóngamörgæsir eru alsendis óskyld dýr.
Vísindamenn hafa eðlilega velt vöngum yfir undarlegu athæfinu en fjórar árásir hafa verið festar á filmu, sem allar sýna selana elta uppi, fanga og snúa niður mörgæsirnar áður en þeim tekst í öllum tilfellum að setja getnaðarlim sinn inn í mörgæsirnar og fullkomna óskiljanlegt brotið.
.
.
Í þremur af þeim fjórum tilfellum sem fest voru á filmu virtust mörgæsirnar komast óskaddaðar frá árásum sela, í einu tilfelli mátti sjá blóðpoll milli fóta mörgæsar en fjórða mörgæsin drapst hins vegar í hamaganginum og var að lokum étin upp til agna af árásargjörnum selinum.
Árásirnar standa, að sögn vísindamanna yfir í u.þ.b. 4 – 6 mínútur en tilgátur hafa verið uppi um að selirnir séu ýmist óreyndir í mökunartilburðum, hafi lítið vald á eigin hormónastarfsemi og bregðist ókvæða við minnsta áreiti eða eigi jafnvel í mestu vandræðum með að bera kennsl á kvenkyns seli.
Hverju sem því líður er gátan um kynferðislegt ofbeldi suðurskautssela rannsóknaraðilum hreinasta ráðgáta, en í nýútkominni rannsóknarritgerð má lesa fremur um málið.
Ástæða þykir til að vara við myndbandinu hér að neðan:
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.