Hér er einn góður pistill um mýtur sem ganga manna og kvenna á milli um töfralausnir við Vefjagigt.
Oft eru svona töfralausnir bara sölutrix og markaðssetning!
Bestu þakkir
Sigrún Baldursdóttir Sjúkraþjálfari og lýðheilsufræðingur fyrir þitt dýrmæta framlag á : vefjagigt.is
Pistillinn í heild sinni:
Ég hef unnið með og lifað meðal vefjagigtarfólks í yfir 30 ár og gæti því allt eins titlað mig mannfræðing í dag en ég er sjúkraþjálfari og lýðheilsufræðingur. Ég hef hlustað, greint, frætt og meðhöndlað þúsundir með þennan sjúkdóm. Ég fer ár hvert á verkjaráðstefnu eða gigtarráðstefnu og drekk í mig allt það nýjasta sem hefur verið rannsakað í vefjagigt.
En það er enn engin fullnaðar lækning við vefjagigt í sjónmáli og lyf í vefjagigt eru til bóta en langt í frá því að veita nægilegan árangur. En endurteknar rannsóknir hafa þó sýnt fram á árangur með hinum ýmsu meðferðarúrræðum, en grunnurinn að bata er aukin þekking á sjúkdómnum, að þekkja sinn eigin líkama og að nota úrræði í daglegu lífi sem efla þrek og líkamlegt atgerfi, nærast vel, tryggja sem bestan svefn, læra að draga úr streituálagi og tryggja sem mesta reglu og jafnvægi í lífinu. Þetta veitist mörgum erfitt en auðveldara undir góðri handleiðslu þverfaglegs teymis.
Þetta úrræðaleysi veldur því að þessi stóri sjúklingahópur er ginkeyptur fyrir “töfralausnum” og ekki vantar þær. Ég veit ekki hversu oft fólk hefur sagt mér frá einhverju nýju á markaðnum sem eigi bara að “lækna” vefjagigtina og fólk er að sjálfsögðu til í að borga hvað sem er fyrir betri heilsu. En í nær öllum tilfellum er batinn bara tímabundinn og spurning hvort að “placebo” áhrifin réðu mestu um batann.
Listinn yfir töfraráðin er langur en mig langar að deila með ykkur töfraráðum frá tveimur skjólstæðingum:
– Leiðrétta rafsegulsmengun í húsinu
– Testa fyrir myglusvepp
– Live wafe plástrar
– Zin Zino
– Benecta
– Alovera jús
– Hvítlaukur marineraður í ákavíti
– Asta zan
– Hampolía
– Krillolía
– Turmerik
– LDN
– CBD olía
Þið getir rétt ímyndað ykkur hvað þeir eru búnir að eyða í “töfraráðin” en eru samt með vefjagigt á illvígu stigi ( vil samt taka það fram að einstaka vefjagigtarsjúklingar segja að þeim líði betur á einhverju af ofantöldu en engar eða litlar vísindalega sannanir liggja fyrir um árangur).
Það koma alltaf af og til fram vefjagigtarsjúklingar sem telja sig hafa læknast af vefjagigt og er það frábært en það sem er oft slæmt í þeirra framsetningu er að þeir tala eins og allir geti læknast ef þeir geri það sama og þeir. Vefjagigt getur legið niðri í langan tíma og oft líður fólki með vefjagigt á vægari stigum þannig að þeir hafi losnað við vefjagigtina en þeir sem eru svo óheppnir að vera með vefjagigt á illvígara stigi eru að kljást við allt annað sjúkdómsástand. Ég hef haft fólk sem líður bara þokkalega vel við litlar úrbætur á lífsstíl, fengið sjúkraþjálfun og etv lyf tímabundið, en ég segi það satt að það eru flestir að díla við sína vefjagigt ævilangt þrátt fyrir að hafa prófað öll töfraráðin.
Kristín fæddist á nunnuspítala og var skírð á flugvelli í henni Ameríku.
Hún er gift og á þrjú börn og eitt barnabarn. Hún hefur að mestum hlut unnið við að efla fólk og hefur menntað sig á því sviði. Ásamt því að skrifa á hun.is vinnur hún sjálfstætt sem meðferðaraðili.
Elskar að lesa, skrifa og mála en útivist og andleg málefni heilla hana.
Hún skrifar út frá eigin reynslu, faglegu nótunum og kaldhæðnislega um upplifun sína af breytingarskeiði miðaldra kvenna. Með hækkandi aldri hefur hún lært að létta sér lífið sem húsmóðir og gera mat á einfaldan hátt en alveg afbragðsgóðan svo frá henni má sjá uppskriftir að ýmsu góðgæti.
Hennar mottó er jákvæðni út í kosmósið því hún hefur lært af lífinu að jákvæðni kemur manni ansi langt!