Polly Penrose ákvað að fara að taka myndir af líkama sínum þegar hún tók eftir því að líkami hennar var að breytast. Þá var hún á þrítugsaldri.
Þessar myndir eru teknar á 7 ára tímabili. Fyrstu myndirnar eru teknar þegar hún er ung einhleyp kona, þegar hún verður ófrísk og svo þegar hún er orðin móðir.
Polly útskýrir í Feature Shoot að líkamstjáning hennar verður afslappaðri þegar hún er orðin móðir og það sést á myndunum.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.