Þessi uppskrift fær mann til að slefa. Hún kemur auðvitað frá Ragnheiði sem er með síðuna Matarlyst á Facebook.
Hráefni
2 msk olía
900 g cherry tómatar ferskir
2 heilir hvítlaukar
1 stór rauðlaukur
2 stk paprikur t.d rauð og gul/appelsínugul.
1 stk rjómaostur með papriku og chili
1 msk balsamic edik
2 tsk timjan
1 tsk svartur pipar
2 tsk salt
2 msk tómat púrra
700 ml grænmetissoð (þ.e 2 grænmetisteningar frá Knorr leystir upp í 1.l vatni)
1 dl rjómi
4 tsk Hlynsýróp bætt út í í lokin
Örlítið sjávarsalt.
Basil pestó frá t d Schala til að bera fram með.
Aðferð
Hitið ofninn í 200 gráður og blástur. Setjið bökunarpappír í form, setjið tómata í formið, skerið botninn af heilum hvítlaukum setjið í formið, skerið lauk í tvennt og svo í sneiðar setjið í formið. Skerið papriku fræhreinsið, skerið í grófa bita setjið í formið. Olíu, balsamediki, timjani salti og pipar er dreift yfir. Hliðrið til grænmetinu setjið ostinn ofaní mitt formið. Setjið inn í heitan ofninn í 30 mín. Útbúið grænmetissoð með því að setja 1 l af vatni og 2 grænmetisteninga frá knorr í pott látið teningana leysast upp í vatninu.
Sjá einnig: Matur sem örvar kynhvötina
Undirbúið mozzarella. Þegar tómatblandan er klár setjið hana í pott, kreistið hvítlaukinn úr hýðinu, setjið 700 ml af soðinu í pottinn ásamt tómatpúrru, látið malla saman á miðlungshita í 5-7 mín. Maukið með töfrasprota, bætið rjómanum út í ásamt hlynsýrópi og jafnvel örlitu salti smakkið til.Nú er hún klár, látið súpuna malla á mjög lágum hita til að halda hita á henni meðan þið útbúið ostinn.
Mozzarella
2 box Mozzarella kúlur
100 g hveiti
3 tsk salt
1 tsk svartur pipar
150-200 g Brauðraspur
2 egg pískuð
Olía ca 500 ml til að djúpsteikja
Aðferð
Veltið mozzarella kúlunum upp úr hveiti, svo í egg og beint í raspinn, endurtakið þar til allar kúlurnar eru orðnar hjúpaðar. Hitið olíu stingið trésleif eða annarri spítu ofaní þegar olían bubblar í kringum spítuna er hún klár. Athugið að fara varlega í kringum olíuna. Setjið mozzarella ostinn ofaní með spaða ca 4-6 saman djúpsteikjið í 20 sek ca.Setjið á dagblað eða eldhúspappír og svo í ílát. Setjið súpu á disk, setjið basil pestó út í súpuna ásamt mozzarella kúlunum.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.