Tveir Íslendingar létust í fallhlífastökki í gær

Tveir Íslendingar létust í fallhlífaslysi á Flórída í gær samkvæmt vísi.is. Slysið átti sér stað á Flórida og voru Íslendingarnir í hópi 22 fallhlífastökkvara en þar af voru nokkrir frá Íslandi.

Íslendingarnir voru á vegum fallhlífa-fyrirtækisins Skydive City og var annar þeirra leiðbeinandi en hinn nemandi. Ljóst var að eitthvað hefði farið úrskeiðis þegar aðeins tuttugu skiluðu sér eftir stökkið.

Reuters greindi frá þessu og hefur eftir fjölmiðlum í Pasco-sýslu að umfangsmikil leit lögreglu hafi farið af stað, bæði í loft og á landi, þegar ekkert bólaði á Íslendingunum.

Fréttastofa AP segir að flugvélin hafi farið í loftið um klukkan 10.30 í gærmorgun að bandarískum tíma. Lík Íslendinganna fundust í skóglendi nærri flugvellinum í Zphyrhills um klukkan 19.30 í gærkvöldi eða um 23.30 að íslenskum tíma.

Talsmaður fallhlífa-fyrirtækisins staðfesti við fjölmiðla í Flórída að mennirnir tveir væru Íslendingar.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here