Brasilíska fyrirsætan Annalu Cardoso heldur því fram að hún hafi átt í ástarsambandi við rapparann Tyga á meðan hann var með núverandi kærustunni sinni Kylie Jenner.
Sjá einnig: Kylie Jenner gengur skrefinu lengra
Hin 23 ára gamla fyrirsæta staðfesti þessar sögusagnir við tímaritið UsWeekly á föstudaginn en vildi þó ekki fara út í nein smáatriði varðandi sambandið.
Talið er að Tyga og Annalu hafi kynnst við tökur á tónlistarmyndbandi hans árið 2014 en þá var Kylie Jenner erlendis. Kylie og Tyga hættu saman í stuttan tíma í nóvember en tóku svo aftur saman. Í desember byrjuðu síðan Annalu og Tyga að senda sms sín á milli.
Sjá einnig: Kylie Jenner og Justin Bieber eiga afar náið samband
Fjölmiðlar vita ekki hvort Kylie Jenner og Tyga séu ennþá saman en þau sáust síðast saman á mánudaginn í Los Angeles.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.