Þessi franska súkkulaðikaka er með þeim betri, því verður ekki neitað. Uppskriftin er fengin af blogginu hennar Tinnu Bjargar, sem ég mæli með að þú skoðir allt til enda og smellir jafnvel í bookmarks. Eins er sniðugt að fylgjast með Tinnu á Facebook.
Sjá einnig: Unaðsleg kaka með hnetubotni og súkkulaðimús
Botninn
1/2 bolli uppáhellt sterkt kaffi
200 gr púðursykur
200 gr sykur
350 gr smjör
300 gr suðusúkkulaði
100 gr ljóst rjómasúkkulaði
5 stór egg
- Hitið kaffi og sykur saman í potti að suðu og takið af hellunni. Bætið við smjöri og súkkulaði, látið bráðna saman við kaffiblönduna og hrærið vel.
- Gott er að skera súkkulaðið fremur smátt svo það bráðni hraðar.
- Athugið að blandan má ekki sjóða eftir að smjöri og súkkulaði hefur verið blandað saman við hana.
- Hrærið egg örlítið saman í skál og bætið saman við súkkulaðiblönduna í pottinum. Hrærið vel þar til deigið verður silkimjúkt og slétt.
- Smyrjið smelluform og sníðið bökunarpappírsörk í botn þess.
- Gott er að klæða smelluformið að utan með álpappír til að koma í veg fyrir að deigið leki úr því á meðan kakan er í ofninum.
- Hellið deiginu í smelluformið og bakið við 170° í 55-60 mínútur.
- Kælið kökuna í 3-4 klst. áður en hún er borin fram. Allra best þykir mér kakan þegar hún hefur staðið í ísskáp yfir nótt.
Dumle karamellukrem
120 gr Dumle karamellukrem
30 ml rjómi
- Bræðið saman í potti Dumle karamellur og rjóma.
- Kælið karamelluna að stofuhita og hellið yfir frönsku súkkulaðikökuna.
Sjá einnig: Stórsniðugt: Heimatilbúnar súkkulaðiskálar
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.