Þessir kubbar eru ótrúlega fljótlegir og því er tilvalið að smella í eina svona uppskrift þegar eitthvað stendur til og maður er agalega tímabundinn. Uppskriftin er af blogginu hennar Tinnu Bjargar – eins og svo mikið af hnossgætinu sem við höfum birt undanfarið.
Sjá einnig: Sjúklega góð súkkulaðikaka með kanilfyllingu
Rjómakaramellukubbar
20 rjómakaramellur frá Freyju
100 gr smjör
3 msk sýróp
5 bollar Rice Krispies
- Bræðið rjómakaramellur, smjör og sýróp saman og látið krauma við vægan hita í 2-3 mínútur.
- Athugið að ef karamellubráðin er látin krauma of lengi þá verða kubbarnir harðir og seigir.
- Takið pottinn af hellunni, hrærið Rice Krispies saman við karamellubráðina og þrýstið blöndunni í ferhyrnt kökumót.
- Kælið kökuna og skerið í kubba.
Sjá einnig: Rice Krispies kubbar með Oreo & hvítu súkkulaði
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.