Fljótlegt “brúntertumöffins”
3 hamingjusöm egg
1 dl kókospálmasykur
¼ tsk vanilluduft eða 1 tsk vanilludropar
2 msk lífrænt hunang eða hlynsýróp
3-4 msk hreint kakó
3 tsk vísteinslyftiduft
100 gr smjör (eða 40 gr smjör og 40 kókosolía EÐA 60 gr kókosolía (fljótandi; krukkan sett í heitt vatnsbað))
200 ml kókosmjólk (ég kaupi þessa í bleiku fernunum í Bónus – hún er aukaefnalaus)
3 dl fínmalað spelt & 1 dl grófmalað spelt
1. Þeyta vel saman egg og sykur með vanillunni
2. Bæta hunanginu/agave sýrópinu út í og hræra aðeins
3. Bæta við öllum þurrefnunum og hræra saman við rólega
4. Bræða smjörið/kókosolíuna og bæta út í ásamt kókosmjólk og hræra saman en hræra samt sem minnst
5. Setja í lítil muffins form, þetta gera um 12-16 muffins
6. Bakað við 180 gráður í um 10 mínútur
*Þið getið gert eina heila köku líka og þá þurfið þið að baka hana í um 18 mínútur.
Einfalt súkkulaðikrem
3 dl flórsykur
1,5 dl rjómi, mjólk eða bara heitt vatn (jafnvel heitt vatn með smá smjörklípu út í)
smá vanilluduft
4 msk hreint kakó
Hrært saman og krem “doppur” settar á hverja muffins er þær hafa kólnað aðeins.
Súkkulaðikrem sem hækkar blóðsykurinn minna en flórsykurskremin gera:
70g lífrænt hlýnsýróp
70g brætt smjör
5 msk lífrænt kakó
Hrært saman, kælt ögn, smurt á … (en þetta krem lekur, er þynnra en hitt!:)
Á heimasíðu Ebbu hér er hægt að finna uppskriftir að öllum uppáhaldssjeikum hennar, þeir eru dásamlega holl, fljótleg og góð máltíð í glasi.
Þar er einnig í boði app fyrir Iphone og Ipad hér þar sem finna má einfaldar uppskriftir að hollum og næringarríkum barnamat fyrir börn frá 6-12 mánaða sem og uppskriftir fyrir alla fjölskylduna. Innkaupalisti fyrir búðina fylgir með. Mjög einfalt og þægilegt í notkun.
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.