Valentínusarborgarar og perluarmbönd – Öll í einn hring

Meistaranemar í viðskiptafræðideild við Háskóla Íslands hafa sett af stað fjáröflunarátakið Öll í einn hring í tengslum viðnámskeiðið Samvinna og árangur undir handleiðslu Elmars H. Hallgríms lektors. Tilgangur námskeiðsins er að nemendur afli fjár fyrir Barnaspítala Hringsins en öllu söfnunarfé verður varið til tækjakaupa fyrir barnaspítalann.

1528705_1413582182217751_17819213_n

Starfsemi háð styrkjum og velvilja

Barnaspítali Hringsins er ein af mikilvægustu stofnunum okkar Íslendinga og starfsemi hans snertir alla landsmenn að einhverju leyti. Spítalinn sinnir göfugu og mikilvægu starfi í þágu þeirra barna þurfa að dvelja þar vegna veikinda sinna. Starfsemi Barnaspítala Hringsins er að miklu leyti háð styrkjum sem og velvilja almennings og íslenskra fyrirtækja um fjármögnun til kaupa á tækjum og öðrum aðbúnaði.

Fjölmargir viðburðir verða haldnir í tengslum við átakið en þannig vilja nemendur vekja athygli á málefninu og virkja þar með unga sem aldna til að styðja við Barnaspítala Hringsins með þeim hætti sem hverjum er unnt. Meðal annars hafa allir grunnskólar landsins fengið boð um að taka þátt í átakinu hver með sínum hætti.

Valentínusarborgari fyrir elskuna

Á Valentínusardag, föstudaginn 14. febrúar, hefur Hamborgarafabrikkan leyft afnot af hamborgarabílum á milli kl. 11:00–13:00 og mun allur ágóði af sölunni renna til átaksins. Hamborgarbílinn verður staðsettur við endann á Lögbergi þar sem seldir verða „hamborgaramiðar“ á Háskólatorgi og fást hamborgararnir afhentir í bílnum gegn afhendingu miða. Verð á hamborgara er kr. 1.300 og með gosi kr. 1.500. Tilvalið tækifæri að gleðja elskuna sína með „Valentínusarhamborgara“.

Þann 15. febrúar kl. 11:00–17:00 verður svo markaður á KEX Hostel með allskyns varningi. Allar vörur kosta einungis 1.000 kr. og rennur ágóði markaðsins óskertur til Barnaspítala Hringsins. Spennandi vörur verða á boðstólum sem dæmi má nefna bækur, leikföng, sælgæti og ýmis konar gjafabréf. Hér gildir fyrstur kemur fyrstur fær. Uppboðsdagar verða haldnir á bland.is dagana 15.-20. febrúar þar sem allur ágóði af uppboðum þessara daga rennur óskiptur til Barnaspítalans.

Perluarmbönd búin til af börnum

Perluarmbönd sem verða búin til af börnum í 1. bekk í nokkrum grunnskólum á höfuðborgasvæðinu verða til sölu hjá Hrím hönnunarhúsi til styrktar átakinu frá 31.janúar. Armböndin verða einnig til sölu í ýmsum verslunum og stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu á meðan byrgðir endast. Armböndin eru úr perlum og stöfum sem móta þau orð sem börnunum dettur í hug í tengslum við málefnið. Hver einasta perla á armbandinu minnir okkur á að hvert barn á skilið góða barnæsku.

Þeim sem vilja styrkja átakið er bent á reikningsnúmer söfnunarinnar sem er 0137-05-060777 og kennitöluna 630114-2410. Einnig viljum við benda fólki á söfnunarsímann 904-1000 þar sem 1000 kr gjaldfærast sjálfkrafa af símreikningi við innhringingu.

SHARE