Valentínusarkort Grumpy cat eru tær snilld fyrir þau okkar sem missum okkur ekki yfir rómantík, krúttlegum böngsum og hjartalaga allskonar þann dag eða aðra daga sem eru á dagatalinu til að minna okkur á ástina, makann og endalausa sælu. Hvort sem það er af því að maki er ekki til staðar, enginn sem við höfum augastað á eða við erum bara ekki að fíla svona daga.
Ég veit ekki með ykkur en ég er að spá í að senda nokkur svona kort þetta árið.
Ps. þrír dagar til að finna kæró fyrir Valentínusardag!……..
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.