Íslenska ríkið á að greiða karlmanni 16 milljónir króna vegna rangrar sjúkdómsgreiningar, en greint er frá málinu á Vísi.is.
Maðurinn hafði leitað til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja vegna sársauka milli herðablaðanna sem hafði varað í nokkra daga. Hann var greindur með bakflæði og fékk hann lyf við því.
9 mánuðum síðar kom maðurinn aftur til læknis vegna sömu verkja og þá kom í ljós að hann var með kransæðastíflu og var fluttur með hraði til Reykjavíkur. Hann fór í þrjár hjartaþræðingar á nokkurra vikna tímabili.
Maðurinn fékk 10 milljónir í bætur frá Sjúkratryggingum Íslands og íslenska ríkið taldi að tjónið hefði verið bætt. Fyrir dómi var svo sýnt fram á að starfsgeta mannsins væri verulega skert og voru honum því dæmdar rúmar 16 og hálf milljón í bætur og málskostnaður greiddur.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.