Blautþurrkur fyrir börn eru eitthvað sem flestir foreldrar hafa notað á einhverjum tímapunkti á börnin sín. Margir foreldrar þurrka ekki bara litla bossa með þurrkunum heldur líka slettur, bletti, hendur og munna.
Nýleg rannsókn sýnir hinsvegar að blautþurrkur eru ekki endilega það öruggasta til að nota á húðina á barninu þínu. Það er allt útaf einu innihaldsefni.
Sjá einnig: Heimagerðar blautþurrkur – Hagstætt og gott fyrir barnið
Mary Wu Chang er prófessor í húð- og barnalækningum við háskóla í Connecticut og tók stóran þátt í rannsóknunum á blautþurrkunum. Hún segir að efni í blautþurrkunum, sem heitir methylisothiazolinone, hafi valdið mörgum börnum ofnæmisviðbrögðum.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.