Vefjur með vel krydduðu nautakjöti og baunum
Efni (ætlað fyrir 6)
- 450 gr.nautahakk
- Stórt glas (450gr.) salsa
- 2 bollar soðin hrísgrjón
- 450 gr. soðnar pinto baunir
- 2 bollar rifinn ostur
- 12 tortillur
- 1/4 bolli sýrður rjómi
Aðferð
- Hitið ofninn upp í 180˚C.
- Steikið kjötið á stórri pönnu við frekar hægan hita.
- Bætið helming af salsa saman við kjötið. Látið krauma í 5 mín.
- Bætið grjónum út í. Látið krauma þar til vökvinn er horfinn (u.þ.b. 10 mín).
- Bætið baunum út í og látið enn krauma.
- Takið pönnuna af hitanum og hrærið 1 bolla af osti saman við.
- Hitið tortillur í örbylgjuofni þar til þær eru mjúkar.
- Setjið fyllingu á hverja köku, rúllið upp.
- Setjið vefjurnar á eldfast fat.
- Setjið afganginn af salsa yfir vefjurnar.
- Lokið með álpappír og bakið í 30 mín.
- Skreytið með sýrðum rjóma.