Hin 15 ára gamla Karinya Chen er mikill aðdáandi Indy hljómsveitarinnar Florence and the Machine. Hún ætlaði sér að fara á tónleika hljómsveitarinnar sem haldnir voru í Austin í Texas. Karinya er með sjaldgæfa tegund krabbameins og varð mjög lasin rétt fyrir tónleikana og þurfti að leggjast inn á spítala til þess að jafna sig. Hún missti því af tónleikunum.
Daginn eftir fékk Karinya óvænta heimsókn en söngkonan Florence og gítarleikarinn Rob Ackroyd komu til hennar á spítalann og héldu einkatónleika fyrir stúlkuna.
Hér er Karinya að syngja með Florence lagið Shake It Out.
https://www.youtube.com/watch?v=6RyAHpJPLwQ&ps=docs
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.