Ég fékk frábæran bækling um daginn frá einni vinkonu minni „Bestu uppskriftirnar 1989“ útgefið af Osta- og Smjörsölunni. Þar er að finna fjöldan allan af skemmtilegum uppskriftum og var örbylgjuofninn greinilega í tísku til brúks á þeim tíma. Núna á næstu vikum ætla ég að setja hérna inn þó nokkuð af þessum frábærum réttum sem er að finna í þessum bækling. En í dag byrjum við á Hátíðarfiski sem var valin besta uppskriftin 1989
Hátíðarfiskur
Fyrir 4-5
800 gr skötuselur
2 saxaðar paprikur
1 sneiddur blaðlaukur
150 gr Búri rifinn
2 dl muldar kartöfluflögur með papriku bragði
2 ½ dl rjómi
4 msk hveiti
1 dl ananassafi eða hvítvín
4 msk smjör
2 msk ólífuolía
1-3 tsk tómatkraftur
¼ tsk tumeric
¼ tsk karrí
1 tsk ítalskt krydd
1 tsk salt
½ tsk svartur pipar
1 fiskiteningur
Aðferð:
Látið grænmetið krauma í 2 msk af smjöri þar til það verður meyrt. Mætið 1 msk af hveiti út í ásamt ananassafa, rjóma, tómatkrafti og örlitlu af vatni, ef sósan er of þykk. Kryddið með turmeric, karrí, ítalska kryddinu og fiskiteningnum. Látið krauma við vægan hita í nokkrar mínútur og hrærið í af og til. Skerið skötuselinn í u.þ.b 4 cm þykka sneiðar. Blandið saman 3 msk hveiti. 1 tsk af salti og ½ tsk pipar. Hitið á pönnu 2 msk af smjöri og 2 msk olíu. Veltið skötuselnum upp úr hveitinu og steikið fiskinn í 2ö3 mínútur á hvorri hlið. Hellið grænmetissósunni í smurt eldfast fat og raðið fiskinum þar ofan á. Blandið saman osti og muldum kartöfluflögum og stráið yfir fiskinn. Bregðið undið glóð í nokkrar mínútur eða þar til að osturinn er bráðinn.