Megi allar góðar vættir gefa að umbúðirnar sem hér má sjá og eru ætlaðar til að geyma rjómaís fyrir konur sem þjakaðar af túrverkjum, leita huggunar í sætindum, komi á markað bráðlega.
.
.
Stúlkan sem á heiðurinn að hönnuninni heitir Parker Jones, veitti Buzzfeed góðfúslega viðtal vegna uppátækisins og er að ljúka hönnunarnámi við háskóla nokkurn í Oklahoma.
.
Sjá einnig: Vandræðalegar umbúðir í verslunum
.
Hugmyndin að ísumbúðum kom frá ágætum prófessor við skólann, en það var ég sem útfærði hugmyndina og kom að lokum niður á rjómaís fyrir konur sem þjakaðar af fyrirtíðaspennu og tíðaverkjum. Að velja réttu slagorðin fyrir hverja tegund var heljarinnar höfuðverkur en hafðist að lokum.
.
Sjá einnig: 10 leiðir til að losna við fyrirtíðaspennu
.
Því miður er rjómaísinn ekki kominn á almennan markað – umbúðirnar eru hugmynd ein – en snilldin er slík að fréttamiðlar hafa þegar bitið á agnið og skólaverkefni Parker er komið á flug.
Nei, ég veit í alvöru ekkert um ísframleiðslu. En ef einhver vill stíga skrefinu lengra og hrinda litla ísbrandaranum mínum i framkvæmd – er ég boðin og búin til að kasta mér í málið. Ég meina, hver þráir ekki að borða ís allan daginn – neih, ég meina auðvitað framleiða ís allan daginn – og hafa hönnun að lifibrauði um leið?
.
Parker heldur úti vefsíðu þar sem má sjá og skoða önnur verk stúlkunnar, sem heldur brátt í atvinnuleit að loknu námi – en sjálf segist hún vonast til þess að hreppa starf í grafískri hönnun.
Ég hef verið að dunda mér við bullumbúðir fyrir uppskálduð fyrirtæki í skólanum – en vonandi verð ég fær um að nota húmor til að hanna umbúðir fyrir raunverulega vöruflokka sem enda í frystihólfum stórverslana innan tíðar.
Við hér á ritstjórn bíðum þess að draumur Parker rætist – við viljum ís sem er ætlaður konum!
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.