Nú er að hefjast ný og skemmtileg áskorun hjá Hreyfingu sem er kjörin fyrir konur sem vilja halda sig í formi þrátt fyrir annir aðventunnar.
Við spjölluðum aðeins við Önnu Eiríks um Desemberáskorunina:
„Áskorunin er fyrir allar sem vilja vera fullar af orku og í fínu formi í desember en það er einmitt mánuðurinn sem við þurfum virkilega á því að halda að hreyfa okkur og mánuðurinn sem margir láta hreyfinguna sitja á hakanum sökum anna. Það er svo mikil snilld að skella sér á námskeið í desember og halda þannig góðum æfingagír fram að áramótum,“ segir Anna.
Anna segir að tímarnir verðifjölbreyttir og árangursríkir með áherslu á þol- og styrktarþjálfun og hver og ein getur ávallt fundið álag við sitt hæfi.
Hér er smá myndband af æfingunum:
[facebook_embedded_post href=”https://www.facebook.com/hreyfing.is/videos/920737851294731/”]
„Þú nýtur þess að borða góðan mat án þess að sitja uppi með aukakíló og vanlíðan í desember. Kennararnir eru frábærir, hvetjandi og skemmtilegir og því alltaf gaman að mæta á æfingu,“ segir Anna.
Þetta er námskeið sem konur ættu klárlega að gefa sjálfum sér í jólagjöf en hvað er betra en að hugsa um heilsuna og gera e-ð frábært fyrir sjálfa sig í desember!
Innifalið:
- 50 góð ráð til að njóta jólanna án þess að bæta á sig aukakílóum
- Þú lærir allt um hvernig á að draga úr sykurlöngun
- Sérhannað brennsluæfingakerfi sem hámarkar fitubruna
- Aðhaldið sem þú þarft – mætingakeppni, vegleg verðlaun
- Fræðsla, fróðleikur og uppskriftir
- Tækjakennsla hjá einkaþjálfara
- Allar fá jólagjöf
Smellið hér til að sjá meira um áskorunina og skrá ykkur til leiks.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.