Ingólfur Þórarinsson eða Ingó í veðurguðunum kemur frá Selfossi og auk þess sem hann hefur gaman að því að spila og syngja er hann öflugur á fótboltavellinum
Fullt nafn: Ingólfur Þórarinsson
Aldur: 27 ára
Hjúskaparstaða: piparsveinn
Atvinna: Tónlistarmaður og skemmtikraftur
…
Hver var fyrsta atvinna þín? Bæjarvinnan á Selfossi, arfinn hefur ekkert þorað að vaxa á Selfossi síðan ég var að reita hann.
Mannstu eftir einhverju ákveðnu tískuslysi frá unglingsárunum? Ég var eitt stórt tískuslys. Var bara að leika mér í fótbolta og spila á gítar í þeim fötum sem ég fékk í jólagjöf eða afmælisgjöf.
Áttu leyndarmál sem mun fylgja þér til grafar? Nei, maður deilir lífssögunum með góðum vinum.
Hefurðu farið hundóánægður úr klippingu og sagt ekki neitt við klipparann? Nei Björn Daði á rakarastofu Björn og Kjartans á Selfossi sér um að klippa mig. Manni líður alltaf eins og Brad Pitt 1997 þegar maður labbar þaðan út.
Kíkirðu í baðskápana hjá fólki sem þú ert í heimsókn hjá? Nei, gerir það einhver?
Vandræðalegasta atvik sem þú hefur lent í? Þegar ég var að spila með veðurguðunum á Hvolsvelli fyrir nokkrum árum og einn gesturinn reif sig úr að neðan og dansaði á sprellanum. Við vissum ekki hvort við ættum að stoppa eða halda áfram.
Í hvernig klæðnaði líður þér best? Gallabuxum, léttum bol og hettupeysu.
Hefurðu komplexa? Já nokkra djöfla að draga en berst við þá.
Hver er besta setning eða orðtak sem þú hefur heyrt? Gangi þér vel og góða skemmtun.
Vefsíðan sem þú skoðar oftast? Dv, facebook, visir, 433.is, blogggattin og tölvupóstsíðurnar
Seinasta sms sem þú fékkst? Farin í golf, mátt reyna að kveikja á sláttuvélinni. Frá mömmu.
Hundur eða köttur? Hundur
Ertu ástfanginn? Nei
Hefurðu brotið lög? Keyrt of hratt, farið yfir á rauðu, sleppt bílbelti, sleppt því að gefa stefnuljós.
Hefurðu grátið í brúðkaupi? Nei, hef verið viðstaddur fallegar athafnir en brosti bara minnir mig.
Hefurðu stolið einhverju? Já, man ég stal af nammibarnum í kaupfélaginu einhverntímann á Selfossi í gamla daga, svo hef ég stolið golfkúlum af einhverjum félögum mínum og æfingafatnaði frá einhverjum fótboltaliðum.
Ef þú gætir breytt einu úr fortíðinni hvað væri það? Ég myndi fara þangað þegar Ísland varð til og flytja það 1000 km sunnar.
Hvernig sérðu þig fyrir þér þegar þú ert komin á eftirlaun? Verð á Spáni með golfsettið, verð svo væntanlega afi með nokkur barnabörn og enn að semja lög en kannski kominn meira í að slaka á en ekki gigga allar helgar.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.