Maður að nafni Fareed Arjmand er með söfnun á Gofundme en hann er faðir 7 ára drengs sem hann getur ekki verið með því hann býr í bílnum sínum. Hann var út af seinasta heimili sínu vegna hegðunar kærustu hans sem hann segir að hafi beitt hann andlegu og líkamlegu ofbeldi, og hafa fjölmargar kvartanir verið lagðar fram af nágrönnum þeirra.
Það sem vakti athygli okkar var að maðurinn hefur verið að birta myndir og myndbönd af konunni í einhverskonar ástandi þar sem hann segir að hún sé að nota lygar og ofbeldi til að halda honum í sambandinu með henni. Melissa hefur verið handtekin vegna heimilisofbeldis og Fareed segist vilja vekja athygli á því að karlmenn eru líka beittir heimilisofbeldi en oft trúi þeim enginn.
Hér segist Melissa ætla að stökkva út um glugga og þegar Fareed bregst ekki við verður hún enn reiðari.
Auðvitað getum við ekki vitað hvað gengur á inni á heimilum fólks eða hver hennar hlið á málinu er, en það er raunin að fullt af fólki beitir andlegu og líkamlegu ofbeldi, ekki bara karlar heldur konur líka.
Það versta í þessu tiltekna máli er að þarna er lítið barn sem horfir upp á það sem fer fram og það er hræðilegt. Ekkert barn á að þurfa að upplifa svona.
Við vitum ekki hvað hefur komið konunni í svona mikið uppnám, það eru engar upptökur af því, en þetta er allt svakalega óhuggulegt. Ef þú eða einhver sem þú þekkir er fórnarlamb heimilisofbeldis þá hvetjum við ykkur til að hringja í lögregluna.