Það hefur mikið verið í umræðunni hvernig feður verða fyrir tálmun af hálfu barnsmæðra sinna og þær hafa komist upp með það oftar enn ekki.
Sem betur fer er vakning í samfélaginu og farið að virða rétt barns til að dvelja hjá báðum foreldrum til jafns og til eru rannsóknir sem styðja það að barn sem býr við þær aðstæður að dvelja helming hjá föður og hinn helming hjá móður kemur betur sett út í lífið en þau börn sem fá aðeins að hitta annað foreldri aðra hverja viku.
Rannsóknir sýna líka að þegar annað foreldri stendur í vegi fyrir því að barnið hitti hitt foreldrið, að þau börn eiga oftar í samskiptavanda en önnur börn og eru oft daprari þar sem þau upplifa að þau eigi ekki tvo foreldra eins og aðrir.
Samkvæmt barnaverndarlögum og barnasáttmáum er það skýlaus réttur barns að umgangast báða foreldra.
Já RÉTTUR barnsins, það gleymist stundum hjá fullorðna fólkinu að barnið hefir réttindi en ekki bara foreldrarnir.
Svo má heldur ekki gleyma að eftir því sem börnin eldast hafa þau rödd sem foreldrar eiga að hlusta á.
Það kemur skýrt fram í barnasáttmálum að barn hefur réttindi, allir hafa aðgang að barnasáttmálanum og barnaverndarlögunum.
Persónulega finnst mér mjög sorglegt að verða vitni að því þegar fullorðið fólk gleymir réttindum barna af því það á í stríði við fyrrverandi maka eða af eigingjörnum ástæðum.
Verjum réttindi barna, ALLTAF
Stöndum upp þegar við sjáum að réttindi þeirra eru ekki virt, verum talsmenn þeirra.
Hér má skoða barnaverndalöginn í heild sinni:
https://www.althingi.is/lagas/nuna/2002080.html
Kristín fæddist á nunnuspítala og var skírð á flugvelli í henni Ameríku.
Hún er gift og á þrjú börn og eitt barnabarn. Hún hefur að mestum hlut unnið við að efla fólk og hefur menntað sig á því sviði. Ásamt því að skrifa á hun.is vinnur hún sjálfstætt sem meðferðaraðili.
Elskar að lesa, skrifa og mála en útivist og andleg málefni heilla hana.
Hún skrifar út frá eigin reynslu, faglegu nótunum og kaldhæðnislega um upplifun sína af breytingarskeiði miðaldra kvenna. Með hækkandi aldri hefur hún lært að létta sér lífið sem húsmóðir og gera mat á einfaldan hátt en alveg afbragðsgóðan svo frá henni má sjá uppskriftir að ýmsu góðgæti.
Hennar mottó er jákvæðni út í kosmósið því hún hefur lært af lífinu að jákvæðni kemur manni ansi langt!