Áhugi neytenda á lífrænum matvælum hefur aukist mjög á síðustu árum samfara auknum áhuga á heilsu- og umhverfisvernd. Fram að þessu hefur aðeins danskur vistvænn kjúklingur fengist hérlendis, í Fjarðarkaupum og Lifandi markaði. Það má því segja að Fyrirtækið Litla gula hænan sé frumkvöðull á Íslandi í framleiðslu og sölu á vistvænum kjúkling sem verður væntanlegur í matvöruverslanir nú í sumar.
En hver er munurinn á vistvænum og hefðbundnum kjúkling?
Velferð fuglanna er höfð að leiðarljósi í gegnum allt framleiðsluferlið á vistvænu kjúklingabúi. Það eru færri fuglar á hvern fermetra, þeir hafa frjálsan aðgang að útisvæði og eru fóðraðir á lífrænu fóðri. Með þessu móti fá fuglarnir tækifæri til að hegða sér á eðlislægan hátt sem skilar sér í betra kjöti, engin spurning. Hvað fóðrið varðar þá er það markmið Litlu gulu hænunnar að hefja lífræna ræktun á því þegar fram líða stundir og nýta hænsnaskít fuglanna sem áburð, enn sem komið er flytja þau fóðrið inn.
Þetta er sannkölluð gleðifrétt fyrir neytendur að eiga von á íslenskum gæðakjúkling frá Litlu gulu hænunni í sumar.
Heimild: Kvennablaðið
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.