Ashley Krupiel (32) er haldin sjaldgæfum sjúkdómi sem aðeins tvær milljónir manna hafa fengið. Sjúkdómurinn heitir Fibrodysplasia Ossificans Progressiva og veldur hann því að vöðvarnir breytast í stein og er ólæknandi. Hún hefur nú þegar misst annan handlegginn og hreyfigetu í öðrum fætinum, en lætur það ekki stöðva sig.
Sjá einnig: Barn sem fæddist án höfuðkúpu
Ashley er hægt og rólega að breytast í mennska styttu og ber sjúkdómurinn annað nafn, sem er “Stone Man Syndrome” og hafa um 800 manns þennan sjúkdóm í heiminum.
Ashley kemur frá borginni Peachtree í Georgia og var hún greind með krabbamein í hendinni þegar hún var tveggja og hálfs árs, en síðar meir greindu læknar að hún hafði í raun verið með þennan sjúkdóm. Hún segir að margir sem eru með þennan sjúkdóm hafa misst alla hreyfigetu, svo hún veit ekki hversu lengi hún mun koma til með að geta hreyft sig. Engu að síður er Ashley staðráðin í að lifa lífinu eins vel og hún getur.
Sjá einnig: ,,Algengasti sjúkdómur sem þú hefur aldrei heyrt talað um“
Sjúkdómurinn leiðir til dauða þegar þegar brjóskið á milli rifjanna breytist í bein, sem veldur því að sjúklingurinn getur ekki lengur andað, þar sem lungun geta ekki þanist út.
Ashley hefur misst hreyfigetu í öðrum fætinum og var annar handleggur hennar fjarlægður þegar hún var tveggja og hálfs árs, vegna þess að læknar töldu að hún væri með krabbamein. Stuttu síðar var hún greind með Fibrodysplasia Ossificans Progressiva.
Sjá einnig: 10 ótrúlegustu sjúkdómarnir – Texti og myndir
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.